56. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 13. maí 2020 kl. 09:32


Mætt:

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) formaður, kl. 09:32
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:32
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:32
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:32
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:32
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:32
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:32

Brynjar Níelsson var fjarverandi. Þórunn Egilsdóttir var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:32
Fundargerðir 54. og 55. fundar voru samþykktar.

2) 644. mál - upplýsingalög Kl. 09:40
Á fund nefndarinnar kom Anna Rut Kristjánsdóttir frá forsætisráðuneytinu. Gerði hún grein fyrir málinu og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) 523. mál - varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands Kl. 10:12
Á fund nefndarinnar kom Anna Rut Kristjánsdóttir frá forsætisráðuneytinu. Gerði hún grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

4) Endurgreiðslukerfi kvikmynda. Skýrsla til Alþingis Kl. 10:34
Nefndin ræddi málið.

5) Önnur mál Kl. 10:43
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:43